laugardagur, apríl 19, 2008

Eymd

Ég er nú á milljón að reyna að skrifa ritgerð og læra undir próf. Takmarkið: BS gráða í geólógíu. Í lærdómseymd minni fer ég oft að hugsa og þá einna helst um tilgangslausa hluti. Ekki í þetta skiptið. Fleiri háskólagráður. En ég er latur. Því gæti verið sniðugt að kaupa sér bara gráðu, t.d. í stjórnun, verkfræði eða efnafræði. Myndi líta vel út á ferilskránni. Ég fer að grúska og er kominn vel á veg með að kaupa mér gráðu. Þeir staðhæfa að hún sé lögmæt og að maður fái 10 skjöl því til staðfestingar. Þetta lítur allt mjög vel út og ég fer að hlakka til að geta slegið um mig í einhverju starfsviðtalinu. En þá kemur verðið. 589 bandaríkjadalir. 45 þúsund íslenskar krónur. Fyrir kreppu kostaði hún bara 30 þúsund. Ég lét ekki verða af kaupunum.
|

þriðjudagur, maí 08, 2007

Fótbolti

Var einhver búinn að gleyma kauða?


Þetta á nú ekki að vera hægt
|

þriðjudagur, maí 01, 2007

Líf mitt í hnotskurn

|

föstudagur, apríl 27, 2007

Kirkjan og trúin

Ef guð er til og hann er alvitur og miskunnsamur þá stórefast ég um að hann kippi sér upp við það hvort barn sé skírt eða ekki. (frétt)

Þetta er eitt dæmið um það hvernig kirkjan mengar kristna trú. Hún sér sig knúna til þess að setja (skálda) skýran ramma utan um allt sem viðkemur trúnni og rammi þessi teygir sig ansi langt.
Kaþólska kirkjan vill t.d. ekki viðurkenna að smokkar hefti útbreiðslu alnæmis.

Það að íslenska ríkið skuli reka kirkju finnst mér líka óheyrilega fáránlegt.
|

fimmtudagur, apríl 26, 2007

Góð velta

Bankinn minn var að hringja í mig og vill bjóða mér betri kjör útaf því að ég er með svo góða veltu á reikningnum mínum. Ætli það séu námslánin sem detta inn á hálfsársfresti sem gera útslagið eða kannski 50 þúsund kallinn sem ég vinn mér inn í hverjum mánuði? Kannski mannavillt? - það yrði nú vandræðalegur fundur.

Þetta er samt tvímælalaust hagvöxtur!
|

mánudagur, apríl 23, 2007

Kosningar

REYKJAVÍK SUÐUR- hvað kemur til greina?






Ég er að pæla í að kjósa út frá kúli - Ómar á alþingi
|

laugardagur, apríl 21, 2007

Ástæðan er fundin!!!

|

mánudagur, apríl 16, 2007

Endurreisn

Mikil deyfð og niðursveifla hefur einkennt fjármálalíf Íslands að undanförnu og því hefur Hagstofan haft lítið til að skrifa um.

Helgin:
Ljóst er að ég mun aldrei aftur ferðast um miðbæ Reykjavíkur aftur án lifvarða eftir árás útúrspíttaðs geðsjúklings. Ég vil þakka lögreglunni fyrir skjót viðbrögð.

Annað mál:
|

föstudagur, janúar 26, 2007

Rocky hjarta Everton

|

föstudagur, desember 15, 2006

Mafía

Nú á ég slökkviliðsvin, blaðamannsvin og flugmannsvin.

Vantar bara stjórnmálamannsvin þá er ég kominn með mafíu.

Björn Ingi ertu til?
|

sunnudagur, desember 10, 2006

Gleðigjafinn Pinochet

"Fólk þeytti bílflautur og safnaðist saman á Plaza Italia í miðborg Santiago eftir að fréttir bárust af láti Pinochets. Sumir veifuðu fánum Chile og dönsuðu af gleði. Sögðu margir, að þeir litu þannig á, að landið væri frelsað undan því oki, sem arfleifð Pinochets væri." (af mbl.is)

jah fólk man allavega eftir honum.

Annað mál: Þeytir fólk bílflutur? Hagstofan hefur nú aldrei heyrt um þetta en ætlar nú að nota þetta í gríð og erg. "þeyttu flautunni á þennan gamla" eða "sjáðu rassinn á þessari, þeyttu flautunni"

Já alltaf lærir maður eitthvað nýtt en stundum gleymir maður.
Hvert myndi efnahagskerfið fara ef það væri eilífur hagvöxtur?
|

þriðjudagur, desember 05, 2006

Tölvur og menn!


Heimsmeistarinn Vladimir Kramnik var gjörsigraður af tölvu. Hvernig nennir fólk að æfa og keppa í íþrótt þar sem tölva er og verður alltaf betri en þú?
Það verður gaman í framtíðinni þegar keppt verður í árlegum fótboltaleik þar sem úrvalslið holdlegra manna í legghlífum keppir við úrvalslið tölvuróbóta með fyrirfram forrituðum kerfum, 10.000.000.000.000 gb í innra minni og þráðlaust net.
|

mánudagur, nóvember 27, 2006

Þyrlur og bakverkir

Airwolf er illa töff en þyrlupallurinn fyrir utan gluggann hjá mér er ekki töff.

Ég er orðinn miðaldra! Baktognun vegna tölvutenginga er mjög miðaldra og engan veginn töff.
|

laugardagur, nóvember 04, 2006

Tælendingur - skítugur

já?..............................................nei?
|

föstudagur, nóvember 03, 2006

Frjálshyggjumenn = idiotar?

Flott hugmynd hjá þessum pjökkum að setja upp borð á Lækjartorgi og reyna að selja bjór.... virkilega gott framtak.

Áfengið úr ríkinu og á götuna!!!

Ef eitthvað eykur hagvöxt þá eru það frjálshyggjumenn.
|

fimmtudagur, október 12, 2006

Oktoberfest

Sumir drekkja sér á Oktoberfest, aðrir munda Gullhnefann!
|

miðvikudagur, september 27, 2006

Flashback

Í hverfinu þar sem ég bjó í Svíþjóð bjó líka einfættur strákur. Ég þekkti hann ekki neitt en ég var alltaf að sjá hann hjóla. Ég dáðist mikið af hæfni hans sem hjólreiðamanni.

Ég neyddist til að reyna þetta í dag þ.e. hjóla einfætt. Það er hægara sagt en gert.

Hvar ætli þessi drengur sé í dag?
Tour de France einfættra?

Ég gef Tour de France fyrir einfætta fjóra hagvexti af fimm mögulegum:
|

miðvikudagur, september 06, 2006

Leikskólinn

Dulinn skilaboð leynast víðar en í málverkum Da Vincis.

Börn = Burn

Ég er farinn að brenna leikskólann hér fyrir utan.... ég þoli hann ekki.
|

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Okur og spilling

Ég hafði hugsað mér að fara á tvo landsleiki sem eru í vændum þ.e. Ísland - Danmörk og Ísland - Svíþjóð en það er víst ekki fyrir fátæka námsmenn að fara á þessa blessuðu landsleiki þar sem það kostar fokking 4500 kall á hvorn leik fyrir sig. KSÍ hefur þar að auki selt meira en helming miðanna (alla á besta stað) til fyrirtækja sem hafa einhverra hluta vegna forkaupsrétt. Þetta er ekkert nema okur og spilling og ég mæli með að fólk sniðgangi þessa leiki og horfi á þá í sjónvarpinu. Þar er það frítt og maður getur auk þess fengið sér bjór með leiknum án þess að eiga það á hættu að vera vísað burt.

Kveðja, ein reið úr vesturbænum.
|

föstudagur, ágúst 18, 2006

Afhommun



1. Afhommun/aflesbíun
2. Gunnar í krossinum
3 Reitt samkynhneigt fólk
4. Strokkur í baksýn

Erum við að tala um snilld eða erum við að tala um snilld?
|